Lýðræði og skipulag eða verktakalýðræði.

Framkvæmdum fylgir gjarnan mikið kapp, en stundum minni forsjá. Þeir sem ætla að framkvæma mikið liggur á, þeim finnast skipulag og annað skrifræði hálfgerður óþarfi, sem tefur fyrir framförum.

Skipulagsmál eru á forræði og ábyrgð sveitarfélaga. Stundum virðast þau hafa selt þetta vald sitt til verktaka eða annarra framkvæmdaaðila. Þeir hafa keypt sér framkvæmdarétt á landskika, sem þeir telja sig geta farið með að vild án tillits til gildandi skipulags. Þannig er algengt að framkvæmdaaðilar ýti á verulegar breytingar á gildandi skipulagi í til að geta reist stærri mannvirki en ráð var fyrir gert. Stundum eru skipulögð heil hverfi, en ekki tekið með í reikninginn að hverfi þurfa vegi, hita, rafmagn, síma, vatn og fráveitur, sem allt þarf að fara í gegn um annað land. Í mörgum tilfellum þrengja nýframkvæmdir að þeirri byggð sem fyrir er. Þær skyggja á útsýni, leiða til aukinnar umferðar og umhverfishljóða.

Í framkvæmdagleðinni gleymist oft lýðræðið. Íbúar eiga að geta haft áhrif á fyrirhugaðar framkvæmdir. Þeir eiga að geta gert athugasemdir við fyrirhugað skipulag og stjórn viðkomandi sveitarfélagsins, á að taka þær til athugunar og svara hverri og einni. Þrátt fyrir þetta eru víða deilur um skipulag. Þá virðast sveitarstjórnir oft líkjast Þorra gamla í kvæðinu Þorraþræl, þar sem þær hlusta á athugasemdir íbúanna, gaddfreðnar, líkt og harðir steinar og gefa engu grið.

Þó verður að fagna því að bæjarstjórn Kópavogs hefur gert hið sjálfsagða og látið undan þrýstingi varðandi stórskipahöfnina í Kársnesi. Víða annars staðar valda skipulagstillögur verulegum deilum og nokkur dæmi sem hafa verið í fjölmiðlum að undanförnu er:

Miðbær Hafnarfjarðar, en þar á að reisa hærri hús en íbúar geta sætt sig við.

Veglagning um Álafosskvos í Mosfellsbæ, en þar á að leggja veg að fyrirhugaðri byggð í svokölluðu Helgafellslandi.

Miðbær Selfoss, þar á að reisa stærri hús, en íbúar geta sætt sig við.

Keilugrandi 1 í Reykjavík, þar var upphaflega ætlað að reisa blokk með 50 íbúðum, en framkvæmdaaðili hyggst reisa 130 íbúðablokk.

Iðnskólareitur á Skólavörðuholti, en þar er verið að skipuleggja verulega stækkun iðnskólans á svæði sem nú þegar er fullsetið.

Þetta eru aðeins nokkur dæmi um mál sem eru í gangi, þar sem sveitarstjórnir virðast hafa misst völd í hendur verktökum og eru eins og milli steins og sleggju, milli verktakana og almennings.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband