Bankarnir heimta sitt

Ég eins og margir fleiri fjárfesti í bíl í ársbyrjun 2006. Til að létta mér lífið ákvað ég að taka lán á góðum kjörum, sem var ekkert mál. Reyndar var bíllinn bæði ódýr og sparneytinn, en samt taldi ég gott á þessum tíma að nýta mér vildarkjörin sem í boði voru. Lánið var kr. 750.000 til 5 ára og nam um helmingi af kaupverðinu. Vextir voru ekki nema 5,8%, en vísitala bættist við. Fyrsta afborgun var ekki nema kr. 16.397, þar af var afborgun af nafnverði kr. 12.295 og vextir kr. 3.622. Málið leit vel út.

Nú hafa vextirnir hækkað heproduct-5155332ldur betur og eru komnir í 10,35% og verðbætur af láninu sem er um helmingur af upphaflegri upphæð kr. 6.662,-. Vextir og verðbætur nema því nú samtals 26,5%. Nú er afborgun af nafnverði sú sama og í upphafi, vaxtagjöldin hafa hækkað upp í kr. 4.266,-  og afborgun verðbóta kr. 2.693,-. Afborgun alls er því kr. 19.449,-.

Afborgunin hefur því hækkað um rúmmar þrjú þúsund krónur vegna hækkunar vaxta og verðbóta og höfðustóll lánsins lækkar ekki nema um rúmmar átta þúsund krónur þrátt fyrir 12 þús. króna afborgun.

Í mínum augum er þetta ekkert annað en okur. Vextir og verðbætur af umræddu láni hafa hækkað úr 5,8% í 26,5% eða yfir 20%. Bankarnir eru farnir að heimta hærri vexti en vanskilavexti af láni sem alltaf hefur verið í skilum. Þetta er alvarlegt umhugsunarefni þegar hinn skuldugi almenningur er krafinn um að herða sultarólarnar og spara, en bankarnir heimta sitt og meira til.

Er ekki kominn tími til að grípa í taumanna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Óttalegar búksorgir eru þetta nú út af smámunum Valgeir minn. En hvað um aumingja vesalings bankana okkar sem eru með alla kaupréttarsamninga bankastjóranna í ani vegna strákslegrar meðferðar á oappísvöndlum í BNA. Eða svo segja þeir a.m.k. Og svo heldur Íbúðarlánasjóður þeim í ægilegri vaxtakreppu útlánanna til unga fólksins sem þeim finnst svo undur vænt um. Bót í máli hvað Spron lækkaði mikið að verðgildi þegar Kaupþing losaði eigendur hans undan öllum áhyggjum með því að borga fyrir hann 15 milljarða í stað þeirra 60 sem Capaccent hafði metið hann á nokkrum dögum fyrr. Stofnfjáreigendur höfðu vaðið fyrir neðan sig. Þeir fundu þetta verðfall "einhvernveginn á sér" og seldu hluti sína í hvelli á matsverðinu.

Svona geta óvæntar tilviljanir orðið góðum mönnum til ábata. 

B.kv. 

Árni Gunnarsson, 6.7.2008 kl. 21:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband